sunnudagur, ágúst 11, 2002

HÆ HÓ. Gaman að Hitta þig Bibbi á hringferðinni minni..... Kunni ekki við að sníkja vöfflur og bjór þegar ég hitti þig ( vertu vissum að ég geri það næst,,, og læt þig vita með fyrirvara...) en mér fannst ansi fyndið að ég skyldi yfirhöfuð hitta Bibba. ég stoppaði alls í 20 mínútur á Egilsstöðum.... fór í kaupfélagið var þar í korter,,,, og skaust svo í byko og mætti Bibba í dyrunum þar. . Svo fórum við til Akureyrar,
Þekkjum alls eina manneskju þar... og hitttum hana í ´Bónus.
Small World......

Til hamingju með daginn Brynjar Árni. Jóna ég er búin að vera á leið til þín lengi að skila þér fiskabúri....... droppa við einhvern daginn....
Minnsti minn varð líka 2 ára á föstudaginn.... ég hugsaði akkúrat í hinaáttina við Jónu. mest fegin að hann eldist... og hættir bráðum á bleiju og að láta halda á sér.....
Er byrjaður í ´leikskóla og ég er að byrja að vinna..... Á MORGUN. fer á námskeið í söguaðferðinni..... svo vinnu á fimmtudaginn..

Bibbi. Sá nafnið þitt í Símabæklingnum (þessum sem fylgir með símareikningnum) þótti helvíti merkilegt að þekkja þig.......

heyrumst.
Steinunn

föstudagur, ágúst 09, 2002

1. regla Golf er ekki íþrótt.
Já þakka ykkur Herdís og Bibbi fyrir komuna en leiðinlegt að fá engan á leiksýningu en þið verðið bara að lesa krítíkina í Mogganum. Já við áttum hér glæsilegan sigurleik á þriðjudaginn þar sem við Bibbi og Stebbi Arinbjarnar og Þór spiluðum allir svo þetta var hálfgert KEnnólið. Myndir eru væntanlegar inn á vefinn af þessu glæsilega liði. Verslunarmannahelgin er afstaðin og var ótrúlega erfið. Heyrumst.

miðvikudagur, ágúst 07, 2002

Ég vil nú benda á að ég hef komið bæði á Strandirnar og einnig á Boggann og það nokkrum sinnum. Í síðasta sinn í gær til að skora mark í sigurleik Borgfirðinga gegn Hallormsstaðamönnum. Ég telst því til þeirra sem hafa komið á báða staðina og það var meira að segja eftir að ég byrjaði í Kennó því að ég gerði mér einmitt far um að skoða Finnbogastaðaskóla.

Héðan er allt hið besta að frétta. Hitti Steinunni hér um daginn frekar óvænt, alveg ótrúlegt að manni skuli ekki vera tjáð þegar menn koma hér við, maður er með fullan ískáp af bjór og vöfflujárn sem býr til ÞOKKALEGA góðar vöfflur. Einnig fínt grill sem er seint of mikið notað.

Er að fara í KHB golfmót í kvöld. (KHB = Kennara og húsvarðafélag bæjarins) (1. regla Kennslukonur eru ekki kennarar) (2. regla sjá fyrstu reglu) (3. regla sjá aðra reglu) (o.s.frv.)

Kveðjur úr Austrinu.

Bibbi